Paulo Pereira (Alex Nicodim / NurPhoto via AFP)
Þrír leikir fóru fram í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í gær þegar 12. umferðin hófst. Fimm leikir verða síðan á dagskrá í kvöld þegar 12. umferðin lýkur. Tvö Íslendingalið voru í eldlínunni í gær en Bjarki Már Elísson var hinsvegar ekki með Veszprém þegar þeir unnu Dinamo Bucuresti á heimavelli 35-28. Norska félagið Kolstad tapaði síðan á heimavelli gegn Nantes 26-33. Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði sex mörk í leiknum og Sigurjón Guðmundsson varði eitt skot. Benedikt Gunnar Óskarsson leikmaður Kolstad er frá keppni vegna meiðsla. Hér að neðan má sjá hápunkta úr leikjum gærkvöldsins: Kolstad - Nantes 26-33 Veszprém - Dinamo Bucuresti 35-28 GOG - Eurofarm Pelister 28-28

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.