Sigursteinn Arndal (Egill Bjarni Friðjónsson)
Mikil spenna og eftirvænting ríkir fyrir fyrri undanúrslitaleik Powerade-bikars karla sem fer fram á Ásvöllum í dag klukkan 18:00 þegar Hafnarfjarðarliðin Haukar og FH mætast. KA og ÍR mætast síðan í seinni undanúrslitaleiknum. Mikil umræða hefur skapast innan handboltahreyfingarinnar um þá staðreynd að bæði kvenna og karlalið Hauka eru í undanúrslitum sem leikin er á þeirra heimavelli. Hefur Einar Ingi Hrafnsson gagnrýnt þetta bæði í Handboltahöllinni síðasta mánudag í Sjónvarpi Símans og þá hefur hann einnig minnst á þetta í Handkastinu. Einar Ingi Hrafnsson verður gestur í Handkastinu í fyrramálið ásamt Guðjóni Guðmundssyni þegar undanúrslitin verða gerð upp. Þar verður þetta mál rætt meðal annars. Sigursteinn Arndal þjálfari FH segir í viðtali við Vísi í dag enga skoðun hafa á því að Haukar spili á heimavelli í undanúrslitum Powerade-bikarsins. „Ég ætla ekki að hafa neina skoðun á því. Allur minn fókus fer í leikinn sjálfan og hvar leikurinn er spilaður kemur mér í rauninni ekkert við.“ Þá er minnst á það að FH hafi unnið Hauka með átta mörkum á Ásvöllum í 19. umferð Olís-deildar karla í síðustu viku. „Já en það var svo sem bara einstakur leikur og hver leikur á sitt eigið líf. Við gerum okkur grein fyrir því að við þurfum bara að koma með nýja og betri frammistöðu. Ég hef ekki neina trú á öðru en að við komum með það. Ef menn eru ekki vel stemmdir á degi sem þessum þá veit ég ekki hvenær þeir ættu að vera vel stemmdir. Það verður stappfullt hús og allt eins og menn vilja hafa það. Við erum fullir tilhlökkunar en meðvitaður um að við þurfum að eiga mjög góðan leik," sagði Sigursteinn í viðtali við Vísi í dag.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.