Ísak Steinsson verður í næsta landsliðshóp
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ísak Steinsson (Kristinn Steinn Traustason)

Ísak Steinsson markvörður Drammen í norsku úrvalsdeildinni verður í landsliðshópi íslenska landsliðsins sem kemur saman í mars ef marka má heimasíðu norska félagsins. Þar óskar Drammen Ísaki til hamingju með valið í íslenska landsliðið í fyrstu leikjum Íslands eftir Evrópumótið.

,,Valið er skýr staðfesting á þeim miklum framförum sem hann hefur sýnt í DHK-treyjunni á þessu tímabili. Ísak hefur staðið sig vel í nokkrum leikjum að undanförnu og hefur meðal annars skarað fram úr með mjög góðri markvörslu gegn Fjellhammer í REMA 1000 deildinni," segir á heimasíðu Drammen.

,,Það er mjög gaman að vera valinn í landsliðið aftur og sérstaklega gaman að það eru leikir gegn Svíþjóð á heimavelli á Íslandi," segir Ísak ánægður á heimasíðu félagsins.

Ísland mætir Svíþjóð í tveimur leikjum hér á landi en dagsetningar leikjanna liggja ekki fyrir. Snorri Steinn hefur ekki tilkynnt landsliðshópinn opinberlega en leikmönnum og félögum leikmanna sem valdir hafa verið hafa verið tilkynnt um valið.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top