Ómar Ingi ekki með Magdeburg í kvöld af persónulegum ástæðum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ómar Ingi Magnússon (Michael Hundt / dpa Picture-Alliance via AFP)

Magdeburg verður án Ómars Inga Magnússonar í Póllandi í kvöld þegar liðið heimsækir Wisla Plock heim í 12.umferð Meistaradeildar Evrópu. Ómar Ingi ferðaðist ekki með liðinu til Póllands í gær.

„Það er möguleiki að ég skilji einhvern eftir heima af persónulegum ástæðum,“ sagði þjálfari Magdeburg Bennet Wiegert í viðtali á þriðjudaginn. „En það er ekkert dramatískt, heldur eitthvað jákvætt," bætti hann við en nú er ljóst að um var að ræða landsliðsfyrirliðann Ómar Inga Magnússon.

Í frétt handball-world.news er bent á að Ómar Ingi verður líklega með Magdeburg gegn MT Melsungen í þýsku úrvalsdeildinni á laugardaginn.

Elvar Örn Jónsson er enn fjarri góðu gamni eftir að hafa handarbrotnað á Evrópumótinu í janúar og verður Gísli Þorgeir Kristjánsson því eini Íslendingurinn í leikmannahópi Magdeburg í kvöld en Magdeburg hefur nú þegar tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Magdeburg eru ríkjandi Evrópumeistarar eftir sigur á Fuchse Berlín í úrslitaleiknum í Köln síðasta sumar.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top