Langmarkahæsti leikmaður ÍR í Olís-deild karla og markahæsti leikmaður deildarinnar, Baldur Fritz Bjarnason fór meiddur af velli í stöðunni 4-2 fyrir ÍR í undanúrslitaleik liðsins gegn KA í gær. Það kom þó ekki að sök því ÍR vann leikinn með einu marki 32-31 eftir dramatískan leik sem bauð upp á kaflaskiptan leik, rautt spjald og ótrúlegar lokamínútur. Bjarni Fritzson þjálfari ÍR og faðir Baldurs var ekki bjartsýnn á að sonur sinn geti spilað úrslitaleikinn gegn Haukum annað kvöld í viðtali við Handkastið eftir leik. ,,Staðan er ekki góð, hann sneri sig illa á ökkla og hefur verið að glíma við það í síðustu leikjum. Það kom eitthvað auka í það í leiknum og hann getur ekki stigið í fótinn. Ég reikna ekki með honum en Elvar Otri var flottur og svona gerist," sagði Bjarni sem endurtók það aftur að fyrst Baldur gæti ekki stigið í fótinn væri mjög ólíklegt að hann væri spilfær í leiknum á morgun og engar töflur myndu geta breytt því. Haukar og ÍR mætast klukkan 18:30 annað kvöld en fyrr um daginn mætast Haukar og Valur í úrslitum Powerade-bikars kvenna en sá leikur hefst klukkan 15:30.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.