Spilandi aðstoðarþjálfari KA, Einar Rafn Eiðsson mun yfirgefa félagið í sumar og flytja suður ásamt fjölskyldu sinni. Þetta staðfesti hann í samtali við Handkastið. Einar Rafn gekk í raðir KA fyrir tímabilið 2021/2022 og er því á sínu fimmta tímabili með KA en hann varð markakóngur Olís-deildarinnar með KA tímabilin 2022/2023 og 2023/2024 en þá varð hann einnig markakóngur í Olís-deildinni er hann lék með FH tímabilið 2015/2016. Einar Rafn varð spilandi aðstoðarþjálfari KA í sumar en hann fór í aðgerð í sumar og er kominn á fullt með KA liðinu sem féll úr leik í undanúrslitum Powerade-bikarsins í síðustu viku. KA verður í eldlínunni á föstudagskvöldið þegar liðið heimsækir Stjörnuna í Heklu-höllina í lokaleik 20.umferðar. Samkvæmt heimildum Handkastsins hafa Hafnarfjarðarliðin, Haukar og FH bæði heyrt í Einari Rafni og sýnt honum áhuga. En í samtali við Handkastið sagði Einar Rafn að framtíðin hans væri enn óljós og ekkert fast í hendi. Hann væri þó staðráðinn í því að halda áfram að spila fyrir sunnan ef tækifæri býðst. Einar Rafn er uppalinn í Haukum en fór ungur að árum til Fram og lék þar í nokkur ár áður en hann skipti yfir í FH. Þaðan gekk hann síðan í raðir KA sumarið 2021. Birkir Benediktsson hægri skytta FH rennur út af samningi í sumar. FH hefur einnig verið orðað við Ágúst Guðmundsson leikmann HK.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.