Hafdís Renötudóttir, markvörður Vals og íslenska landsliðsins verður ekki með landsliðinu í leiknum gegn Svartfjallalandi í Podgorica í Svartfjallalandi næstkomandi sunnudag. Hafdís fékk boltann í höfuðið seint í leik Íslands gegn Svartfjallalandi í gærkvöldi með þeim afleiðingum að hún yfirgaf völlinn. Hafdís flaug ekki með íslenska landsliðinu út í nótt og átti að taka stöðuna á henni í dag. Nú hefur Arnar Pétursson þjálfari íslenska landsliðsins staðfest í samtali við Handbolta.is að Hafdís mun ekki leika með liðinu á sunnudaginn. Ethel Gyða Bjarnason markvörður Fram ferðaðist með íslenska landsliðinu út í nótt og nú er ljóst að hún mun mynda markvarðarpar íslenska landsliðsins ásamt Söru Sif Helgadóttur markvarðar Hauka á sunnudaginn. Ethel Gyða mun þar með spila sinn fyrsta A-landsleik á ferlinum. Leikur Svartfjallalands og Íslands er fjórði leikur liðanna í undanriðli fyrir Evrópumótið en Ísland vann frækinn eins marks sigur á Svartfjallalandi í gærkvöldi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.