Dinamo Búkarest hefur byrjað að setja saman leikmannahóp sinn fyrir næsta tímabil og hefur nú þegar fengið gríðarlegan liðsstyrk. Sagt er frá því í erlendum fjölmiðlum að portúgalski landsliðsmaðurinn Victor Iturriza gangi í raðir rúmenska félagsins og hafi skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Iturriza hefur leikið með Al Kuwait undanfarin en spilaði áður heil níu tímabil hjá FC Porto í heimalandinu. Þjálfari Dinamo Búkarest er landsliðsþjálfari Portúgals, Paulo Pereira. Hjá rúmensku meisturunum tekur Iturriza við af Dananum Frederik Ladefoged, sem fer til Paris Saint-Germain í sumar. Iturriza var lengi vel orðaður við ungverska stórliðið Veszprém en félagið ákvað að semja við Egyptann Ahmed Abdel. Iturriza hefur verið í lykilhlutverki með portúgalska landsliðinu sem hefur náð góðum árangri á síðustu stórmótum en Portúgal endaði meðal annars í 5.sæti á EM í janúar og 4.sæti á HM í fyrra. Portúgalinn er talinn eiga að fylla skarð Miklós Rosta sem hefur yfirgefur rúmenska félagið í sumar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.