Unglingalandsliðsmaðurinn og línumaður KA í Olís-deild karla Jens Bragi Bergþórsson skrifaði í gær undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA og er nú samningsbundinn út tímabilið 2027-2028. Jens sem er uppalinn í KA lék sinn fyrsta meistaraflokks leik fyrir 16 ára gamall, tímabilið 2022/2023. Hann hefur í kjölfarið leiki 81 leik fyrir KA bæði í deild og bikar auk þess að vera lykilmaður í yngri landsliðum Íslands. Í vetur hefur Jens skorað 73 mörk í 22 leikjum og er með skotnýtingu upp á 84% auk þess að fiska þrettán vítaköst. ,,Jens var afar sigursæll með yngriflokkum KA en hann er hluti af hinum ógnarsterka 2006 KA árgang sem vann allt sem hægt var að vinna upp yngriflokkana en strákarnir töpuðu meðal annars ekki leik í öllum fjórða flokki en þeir urðu einnig Partille Cup meistarar en þar lögðu þeir mörg af sterkustu liðum Norðurlandanna," segir meðal annars í tilkynningunni frá KA. ,,Frammistaða Jens í vetur sýnir skýrt að hann á svo sannarlega framtíðina fyrir sér og afar jákvætt að hann sé búinn að framlengja samning sinn við uppeldisfélagið. Það verður gaman að fylgjast með honum áfram stíga skref fram á við í gula og bláa búningnum og klárt að við höldum áfram að spila á okkar efnilegu og öflugu ungu leikmönnum og byggja þar með áfram á sterkum KA anda." Jens verður í eldlínunni með KA í Heklu-höllinni á morgun þegar Stjarnan og KA mætast í lokaleik 20.umferðar Olís-deildar karla klukkan 18:30.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.