FH tók á móti Aftureldingu í 20.umferð Olís deildar karla í handbolta í kvöld. Heimamenn voru án þjálfara síns Sigursteins Arndal, sem fékk leikbann eftir rautt spjald í undanúrslitarleik gegn Haukum í síðustu viku og var því Aron Pálmarsson aðalþjálfari FH í kvöld ásamt Einari Andra Einarssyni. Afturelding byrjaði leikinn betur og komst í 0-3 en FH voru snöggir að jafna leikinn aftur. Afturelding hafði þó frumkvæðið í fyrri hálfleik og voru alltaf skrefinu á undan FH og leiddu í hálfleik, 13-15. Aron Pálmarsson hefur farið vel yfir málin í hálfleik því FH komu grimmir út í síðari hálfleik og voru komnir með forystu eftir um 6 mínútna leik. Afturelding náði þó aftur frumkvæðinu og skoraði fjögur mörk í röð og komust þrem mörkum yfir. Heimamenn í FH náðu góðum kafla undir lok leiksins og komust einu marki yfir þegar fimm mínútur voru eftir af leiknum. Lokamínúturnar voru æsispennandi og var allt jafnt þegar 20 sekúndur voru eftir, 29-29. Stefán Árnason þjálfari Aftureldingar tók þá leikhlé og stillti upp lokasókninni. Mosfellingar héldu áfram í 7 á 6 en Oscar Lykke átti slæma sendingu sem Jakob Martin komst inní og skoraði í tómt markið þegar 10 sekúndur voru eftir. Árni Bragi Eyjólfsson átti lokaskot leiksins en það var varið af FH vörninni og ótrúlegur eins marks sigur FH staðreynd, 30-29. Garðar Ingi Sindrason var markahæstur í liði FH með 6 mörk en hjá Aftureldingu voru Igor Kopyshynskyi og Kristján Ottó Hjálmsson markahæstir með 7 mörk. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.