HK stigu stórt skref í átt að úrslitakeppninni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

HK vann virkilega sannfærandi og á sama tíma mikilvægan sjö marka sigur á Selfossi í 20.umferð Olís-deildar karla í Kórnum í kvöld. Ekki munaði nema einu stigi á liðunum fyrir leikinn í kvöld en HK var í 8.sætinu með 12 stig á meðan Selfoss var með 11 stig.

Það var því mikið undir fyrir bæði lið í Kórnum í kvöld en HK-ingar voru sterkari aðilinn nánast allan leikinn. Í stöðunni 5-6 fyrir Selfossi kom slæmur kafli hjá gestunum og HK-ingar breyttu stöðunni í 11-7. Staðan í hálfleik var 15-12 HK í vil.

HK var yfir allan seinni hálfleikinn en Selfyssingar byrjuðu seinni hálfleikinn betur og minnkuðu muninn í eitt mark 21-20 en þá kom aftur slæmur kafli þar sem Selfyssingar töpuðu mörgum boltum og HK-ingar skyndilega komnir sex mörkum yfir 31-25. Lokatölur í Kórnum 38-21 HK í vil.

Hjörtur Ingi Halldórsson og Ágúst Guðmundsson voru markahæstir með átta mörk hvor. Haukur Ingi Hauksson skoraði sjö mörk úr 17 skot tilraunum. Jovan Kukobat stóð lengst af í marki HK og varði 10 skot og Brynjar Vignir Sigurjónsson varði sjö skot.

Hjá Selfossi var Hákon Garri Gestsson markahæstur með 10 mörk og Hannes Höskuldsson skoraði átta. Alexander Hrafnkelsson varði átta skot og Philipp Seidemann fjögur.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top