Markaregn í Eyjum þegar ÍR komu í heimsókn
{{brizy_dc_image_alt entityId=

ÍBV fengu ÍR í heimsókn til sín til Vestmannaeyja í kvöld í 20.umferð Olís deildar karla.

ÍR komu öllum á óvart þegar þeir komust alla leið í bikarúrslit um síðustu helgi en töpuðu þar gegn Haukum.

Heimamenn byrjuðu leikinn betur og var snemma ljóst að mikið yrði skorað í leiknum því það voru komin tuttugu mörk eftir rúmlega tíu mínútna leik. Eyjamenn voru komnir átta mörkum yfir um miðbik fyrri hálfleiks en ÍR náði aðeins að klóra í bakkann fyrir hálfleik og var staðan 22-17 þegar liðin gengu til búningsherbergja.

ÍR-ingar komu sterkir til leiks í síðari hálfleik og voru búnir að minnka muninn í eitt mark þegar fimmtán mínútur voru eftir af leiknum. Eyjamenn náðu þá aðeins að slíta sig frá aftur og unnu að lokum fjögurra marka sigur, 44-40.

Áttatíu og fjögur mörk voru skoruð í leiknum og voru Andri Erlingsson og Hákon Daði Styrmisson markahæstir hjá ÍBV með 10 mörk hvor. Hjá ÍR var Jökull Blöndal Björnsson markahæstur með 14 mörk í fjarveru Baldurs Fritz Bjarnasonar.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top