Tveir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar Stuttgart tók á móti Kiel og Gummersbach fékk Lemgo í heimsókn. Í Stuttgart voru heldur betur óvænt úrslit þar sem heimamenn unnu sannfærandi fimm marka sigur á Kiel 32-27 eftir að hafa verið 14-16 undir í hálfleik en Kiel náði mest fimm marka forystu í fyrri hálfleik í stöðunni 4-9. Stuttgart komu sér hægt og bítandi inn í leikinn og komust í fyrsta skipti yfir í stöðunni 20-19 en í stöðunni 20-20 kom 8-1 kafli hjá Stuttgart sem breyttu stöðunni í 28-21. Þar fór Ítalinn Seimone Mengon mikið og skoraði fjögur mörk á þeim kafla. Á þeim tíma voru úrslitin nánast ráðin og lokatölur 32-27 Stuttgart í vil. Kai Hafner var markahæstur með tíu mörk og Jakob Nigg og Simone Mengon skoruðu sjö mörk hvor. Hjá Kiel var Hendrik Pekeler og Lukas Zerbe með fimm mörk. Gummersbach vann síðan eins marks sigur á Lemgo 28-27 eftir að hafa verið 15-14 yfir í hálfleik. Gummersbach var yfir nánast allan leikinn en Lemgo komst yfir í stöðunni 25-26 í fyrsta skipti í leiknum. Gummersbach voru hinsvegar sterkari aðilinn síðustu mínútur leiksins og unnu síðustu fimm mínútur leiksins 3-1 og leikinn að lokum 28-27. Elliði Snær Viðarsson skoraði fimm mörk fyrir Gummersbach og Teitur Örn Einarsson skoraði eitt mark. Dominik Kuzmanovic varði 13 skot í marki Gummersbach. Kai Smits var markahæstur allra á vellinum með átta mörk en Niels Versteijnen og Samuel Zehnder skoruðu sex mörk hvor fyrir Lemgo. Um var að ræða gríðarlega mikilvægan sigur fyrir Gummersbach sem fara í 33 stig og eru nú einungis einu stigi á eftir Lemgo og Kiel sem eru í 4. og 5.sæti deildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.