Sænski landsliðsmaðurinn Jonathan Edvardsson hefur framlengt samningi sínum við þýska úrvalsdeildarliðið Hannover-Burgdorf til ársins 2028. Edvardsson sem verður 29 ára í apríl á þessu ári gekk í raðir Hannover-Burgdorf sumarið 2021 og er því á sínu fimmta tímabili hjá félaginu. Nú er ljóst að hann verður liðsmaður Hannover-Burgdorf í það minnsta til ársins 2028. Edvardsson var ekki í sænska landsliðshópnum á Evrópumótinu í janúar en hann hefur unnið til þriggja verðlauna með sænska landsliðinu á stórmótum á ferlinum. Hann var hluti af sænska landsliðinu sem vann Evrópumótið árið 2022 og þá var hann í sænska landsliðinu sem vann til bronsverðlauna á EM 2024. Þá var hann einnig í sænska landsliðinu sem vann til silfurverðlauna á HM 2021 í Egyptalandi. Jonathan er níundi markahæsti leikmaður Hannover Burgdorf á þessu tímabili með 30 mörk en hann er hinsvegar markahæsti leikmaður liðsins í Evrópudeildinni með 19 mörk en liðið er komið áfram í 8-liða úrslit Evrópudeildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.