Sigtryggur dreymir um að koma til baka í úrslitakeppninni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Sigtryggur Daði Rúnarsson leikmaður ÍBV hefur ekki leikið með liðinu eftir áramót í Olís-deild karla en eins og Handkastið greindi frá í byrjun febrúar þá glímir Sigtryggur Daði við frekar sjaldgæf meiðsli og ríkir mikil óvissa um það hvort og hvenær Sigtryggur getur snúið aftur á völlinn.

,,Það uppgvötaðist núna um jólin að lífbeinið hjá mér væri illa farið eftir ofálag og það sást að það var kominn beinbjúgur eða mögulega lítið brot í það sem var að hamla mér í hreyfingum. Það eina sem virkar greinilega gegn þessu er bara hvíld í ákveðinn tíma og meta síðan stöðuna eftir það. Þannig ég er í því ferli núna," sagði Sigtryggur við Handkastið í febrúar en á þeim tímapunkti setti hann stefnuna á að reyna koma til baka í lokaumferðir í Olís-deildinni.

Sigtryggur segir að enn ríki mikil óvissa með endurkomu hans í ÍBV liðið á þessu tímabili.

,,Tíminn er að klárast sem var gefinn í upphafi að þetta myndi taka til að gróa. Þannig við erum að fara að taka stöðuna og prófa okkur vonandi áfram á æfingum," sagði Sigtryggur sem segir að á næstu dögum skýrist hvernig líkaminn tekur í aukið álag.

,,Ef það allt gengur vandræðalaust fyrir sig þá þarf ég að vera helvíti fljótur að koma mér í leikform til að geta tekið þátt í úrslitakeppninni. Það er draumurinn að þetta gangi svona upp en það er því miður ennþá óvissa með hvernig staðan er á þessu eftir þennan tíma og hvernig þetta bregst við þegar hreyfingin byrjar aftur," sagði Sigtryggur sem gerir ekki ráð fyrir að leika síðustu leiki ÍBV í Olís-deildinni en vonast til að geta leikið í úrslitakeppninni.

ÍBV fær ÍR í heimsókn í 20.umferð Olís-deildar karla í Vestmannaeyjum í kvöld. Liðið fer svo í heimsókn til Íslandsmeistara Fram á mánudaginn áður en liðið fær topplið Vals í heimsókn í lokaumferðinni næsta fimmtudag.

ÍBV er í 6.sæti deildarinnar með 23 stig, stigi meira en Fram er í 7.sætinu og stigi á eftir KA sem er í 5.sætinu. Það er því mikil spenna fyrir lokaumferðirnar í Olís-deild karla á öllum vígstöðvum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top