Steini Arndal fékk bann eftir tapið gegn Haukum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Sigursteinn Arndal þjálfari FH tekur út leikbann í leik FH og Aftureldingar í 20.umferð Olís-deildar karla sem fer fram í Kaplakrika þessa stundina.

Sigursteinn Arndal fékk útilokun eftir leik FH og Hauka í undanúrslitum Powerade-bikarsins í síðustu viku þar sem hann var ósáttur með dómara leiksins undir lok leiks.

,,Sigursteinn Arndal starfsmaður FH hlaut útilokun með skýrslu vegna mjög ódrengilegrar hegðunar í leik FH og Hauka í Powerade bikar karla þann 26.02.2026. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:10 a) og 16:11 c). Með tilvísun í 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að starfsmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann. Aganefnd vekur athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 1. mgr. 11. sömu reglugerðar."

Aron Pálmarsson stýrir því liði FH af hliðarlínunni í kvöld og Einar Andri Einarsson er honum til aðstoðar en Aron kom inn í þjálfarateymi FH eftir áramót.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top