Ragnheiður gengur með barn
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Hægri hornamaður Hauka í Olís-deild kvenna, Ragnheiður Ragnarsdóttir leikur ekki meira með liðinu á þessu tímabili. Ragnheiður er ólétt en það er Handbolti.is sem greinir frá.

Hún kom lítillega við sögu í bikarúrslitahelginni sem fram fór í lok febrúar þar sem Haukar töpuðu gegn Val í úrslitaleik Powerade-bikarsins. Ragnheiður sem varð 31 árs fyrr á þessu ári hefur leikið með meistaraflokki Hauka í rúmlegan áratug en hún er uppalin á Ásvöllum.

Ragnheiður er annar örvhenti leikmaður kvennaliðs Hauka sem dettur út á tímabilinu vegna óléttu en Rut Arnfjörð Jónsdóttir er einnig ólétt og lék aðeins tvo leiki með Haukum á tímabilinu. Landsliðskonan, Sonja Lind Sigsteinsdóttir er því eini örvhenti leikmaðurinn í leikmannahópi Hauka.

Ragnheiður hafði skorað 21 mark fyrir Hauka á tímabilinu í 17 leikjum í Olís-deildinni en Sonja Lind hefur verið hægri hornamaður númer eitt hjá Haukum á þessu tímabili.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top