Tinna Ósk Gunnarsdóttir hefur framlengt samningi sínum við Grill66-deildarlið HK. Þetta tilkynnti HK á samfélagsmiðlum sínum fyrir helgi. Tinna Ósk er markahæsti leikmaður HK í Grill66-deildinni á tímabilinu með 94 mörk í 18 leikjum en hún var eftirsóttur biti liða í Olís-deild kvenna en hún hefur ákveðið að halda tryggð við uppeldisfélagið sitt og framlengt samningi sínum í Kórnum. ,,Tinna Ósk er áræðin og metnaðargjörn og hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína. Hún hefur spilað með yngri flokkum HK og einnig spilað með yngri landsliðum Íslands í handbolta. Síðastliðin tvö tímabil hefur hún spilað með meistaraflokki kvenna og tekið miklum framförum á þeim tíma og er það sem af er vetri markahæsti leikmaður liðsins. Það er afar ánægjulegt að hafa Tinnu Ósk áfram í okkar röðum, hún hefur verið mjög öflug og býr yfir öllum þeim eiginleikum sem þarf til að ná langt. Hún kemur áfram til með að styðja mjög vel við að ná þeim markmiðum sem meistaraflokkur kvenna hefur sett sér," segir í tilkynningunni frá HK. HK er í 2.sæti Grill66-deildarinnar með 32 stig jafn mörg stig og Grótta sem stendur betur að vígi innbyrðis á milli félaga. Þrjár umferðir eru eftir af deildinni en einungis eitt lið fer beint upp í Olís-deildina. Dagur Snær Steingrímsson var á dögunum kynntur sem nýr þjálfari kvennaliðs HK og tekur við liðinu í sumar af Hilmari Guðlaugssyni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.