Sveinbjörn nýkominn úr neðanjarðarbyrgi: Óþægileg upplifun
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Markvörðurinn Sveinbjörn Pétursson hefur leikið í Ísrael síðustu tvö tímabili með Hapoel Ashdod eftir að hafa gengið í raðir félagsins frá Aue í Þýskalandi. Í viðtali við Vísi fyrir helgi segir hann að hann sé ekki á heimleið til Íslands frá Ísrael vegna stöðunnar í Mið-Austurlöndum þessa dagana eftir að Ísrael og Bandaríkin réðust á Íran.

Sveinbjörn býr í Ísrael ásamt þýskri eiginkonu sinni og segir hann að þau séu ekki í stöðu til að ferðast í flug sem þeim var boðið frá Jórdaníu eða Sádi-Arabíu, en myndu stökkva upp í næstu vél frá Ísrael. Sveinbjörn segist vera öruggur eins og staðan er í dag með neðanjarðarbyrgi til að skýla sér bæði heima fyrir fyrir og á æfingum liðsins.

,,Auðvitað er þetta óþægileg upplifun og allt það, en við gætum samt verið í verri stöðu miðað við aðra Íslendinga sem maður hefur heyrt og lesið um undanfarna daga sem eru stödd hérna í heiminum. Við erum örugg þar sem við búum og erum með neðanjarðarbunker sem við hoppum í þegar þess þarf. Við erum nýkomin upp eftir að hafa þurft að hoppa niður,“ sagði Sveinbjörn meðal annars í viðtali við Vísi.

Öllum leikjum í Ísrael hefur verið frestað til 27.mars en úrslitakeppnin í úrvalsdeildinni í Ísrael átti að hefjast fyrir helgi.

,,Það eru varúðarsírenur reglulega ef eitthvað gæti verið á leiðinni hingað og þá fer maður á öruggan stað á meðan það gengur yfir," lýsti Sveinbjörn stöðunni hjá sér en liðið hafði ekki fengið að æfa í nokkra daga en tók æfingu á fimmtudaginn í fyrsta sinn í langan tíma.

Sveinbjörn segist hafa fengið boð um björgunarflug af borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins en þau flug sem stóðu honum til boða voru frá Amman í Jórdaníu og Riyaj í Sádi-Arabíu. Sveinbjörn segir að ferðalagið á þessa flugvelli hafi ekki þóknast honum.

,,Ef ég gæti bara rúllað upp á völl til Tel-Aviv í dag myndi ég taka flugið heim," sagði Sveinbjörn meðal annars í viðtalinu við Vísi.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top