Norðurlöndin: Kolstad með stórsigur
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Tvö Íslendingalið áttu leik í dag í Danmörku og Noregi en í Noregi unnu Kolstad sannkallaðan stórsigur á útivelli gegn Sandnes, lokatölur voru 16-40.

Kolstad eru eftir sigurinn fjórum stigum á eftir Elverum en fjórar umferðir eru eftir af deildarkeppninni en liðin mætast í næstu umferð þar sem Kolstad verða að vinna til að eygja möguleika á deildarmeistaratitlinum. Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði sex mörk úr sex skotum en þar af voru fjögur úr vítum en hann gaf einnig eina stoðsendingu. Benedikt Gunnar Óskarsson var mættur aftur í lið gestanna og hann skoraði eitt mark úr einu skoti og gaf fjórar stoðsendingar. Sigurjón Guðmundsson fékk tækifæri í markinu og það er óhætt að segja að hann hafi gripið það en hann varði ellefu af þeim átján skotum sem hann fékk á sig eða 61% markvarsla.

Í Danmörku áttu heimamenn í Ringsted aldrei möguleika gegn GOG sem fóru á kostum og unnu þægilegan útisigur, 25-37. Ísak Gústafsson skoraði þrjú mörk úr átta skotum og gaf tvær stoðsendingar fyrir Ringsted á meðan Guðmundur Bragi Ástþórsson skoraði tvö mörk úr fjórum skotum, gaf eina stoðsendingu og fékk að auki eina brottvísun.

Úrslit dagsins:

Sandnes 16-40 Kolstad

Ringsted 25-37 GOG

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top