Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari íslenska karla landsliðsins tilkynnir í hádeginu á morgun leikmannahóp sinn fyrir tvenna æfingaleiki gegn Svíum sem fara fram hér á landi dagana 19. og 21. mars. Fyrri leikur þjóðanna fer fram í N1-höllinni á Hlíðarenda, heimavelli Vals og seinni leikurinn fer fram í Kaplakrika heimavelli FH. Í tilkynningu frá HSÍ sem send var fjölmiðlum fyrir helgi var sagt frá því að blaðamannafundur verði haldinn í höfuðstöðvum Arion banka í hádeginu á morgun. Auk þess sem Snorri Steinn mun þar tilkynna leikmannahóp sinn fyrir komandi verkefni þá verður einnig tilkynnt um verkefni landsliðsins í maí, undankeppnina fyrir EM 2028 og æfingaleiki íslenska landsliðsins í aðdraganda HM á næsta ári sem fram fer í Þýskalandi. Tekið er fram að Snorri Steinn Guðjónsson og Björgvin Páll Gústavsson sitja fyrir svörum á blaðamannafundinum. Gera má ráð fyrir að einhverjar breytingar verði á leikmannahópi íslenska landsliðsins í verkefninu gegn Svíþjóð frá Evrópumótinu í janúar. Bjarki Már Elísson og Elvar Örn Jónsson eru til að mynda báðir að glíma við meiðsli.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.