Þýskur landsliðsmaður gæti yfirgefið Flensburg
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Þýski landsliðsmaðurinn, Luca Witzke leikmaður SG Flensburg-Handeweitt gæti yfirgefið félagið eftir tímabilið aðeins einu ári eftir að hann gekk til liðs við félagið.

Witzke gekk í raðir Flensburg síðasta sumar sex ár hjá SC DHfK Leipzig en þýski fjölmiðillinn Sport Bild greinir frá því að Witzke gæti verið á förum frá félaginu. Meðal félaga sem nefnd eru sem mögulegir áfangastaðir Witzke eru HC ERlangen og MT Melsungen.

Witzke fór frá SC DHfK Leipzig til Flensburg síðasta sumar til að taka næsta skref í ferlinum, en dvöl hans hjá Flensburg hefur einkennst bæði af meiðslum og takmörkuðum spilatíma.

Í þýsku úrvalsdeildinni hefur hann aðeins spilað rétt rúman hálftíma á þessu tímabili og eftir aðgerð á öxl í lok nóvember er ljóst að Witzke mun ekki spila meira á þessu tímabili.

Samkvæmt Sport Bild hefur 26 ára gamli Witzke því skoðað möguleikana á að losna undan samningi sínum, sem annars gildir til sumarsins 2027. Flensburg er sagt krefjast um 300.000 evra fyrir leikmanninn ef hann ætlar að fara fyrr en áætlað er.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top