Bjarni Fritzson var gríðarlega glaður með sigur sinna manna í kvöld á Stjörnunni en ÍR vann leikinn 30-26 og eru ennþá í baráttunni með að halda sæti sínu í deildinni. ,,Við drilluðum varnarleikinn sérstaklega vel eftir frammistöðuna á móti ÍBV" sagði Bjarni í samtali við Handkastið í kvöld en sagði að það hefði verið á kostnað sóknarleiksins eins og sást í kvöld. ÍR á lokaleik gegn FH á fimmtudaginn og segir Bjarni að undirbúningur hefjist strax í kvöld. ,,Þetta er bara fjör og við erum búnir að koma okkur í tækifæri að gera eitthvað í lokaumferðinni og erum glaðir með það." Allt viðtalið má sjá hér að neðan:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.