Hrannar Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar, var að vonum svekktur með úrslitin í kvöld þegar hans menn töpuðu gegn ÍR í Skógarselinu, 30-26. Hrannar segir sína menn hafa verið sjálfum sér verstir og hafi hreinlega kastað leiknum frá sér í kvöld sem er oft einkennandi fyrir lið í miklu mótlæti, líkt og Stjarnan er í. Undirbúningur fyrir lokaleikinn fyrir Fram hefst strax í kvöld sagði Hrannar. ,,Það er bara að duga að drepast í þeim leik og við megum engan tíma missa." Allt viðtalið má sjá hér að neðan:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.