Norðurlöndin: Sävehof með sigur í Íslendingaslag
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Þrjú Íslendingalið áttu leik í kvöld í Svíþjóð en tvö þeirra mættust innbyrðis í Partille Arena í Gautaborg þegar Sävehof tók á móti Amo.

Það voru heimamenn sem voru sterkari í kvöld en þeir unnu nauman sigur, 35-33. Birgir Steinn Jónsson lét lítið að sér kveða hjá Sävehof á meðan Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði eitt mark úr fimm skotum og gaf þrjár stoðsendingar fyrir gestina. Sävehof eru í góðum málum hvað varðar úrslitakeppni en þeir sitja í fimmta sæti deildarinnar og eru þremur stigum fyrir ofan níunda sætið þegar tveir leikir eru eftir.

Gestirnir í Amo sitja í tíunda sæti og eru í harðri baráttu að forðast umspil um að halda sæti sínu í deildinni.

Karlskrona unnu góðan útisigur á Helsingborg, 35-36. Arnór Viðarsson skoraði eitt mark úr fimm skotum fyrir gestina og gaf að auki tvær stoðsendingar. Karlskrona eru áfram í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppnina en þeir sitja í níunda sætinu með 26 stig sem eru jafnmörg stig og liðin í áttunda og sjöunda eru með og liðið í sjötta sæti er síðan með 27 stig.

Úrslit kvöldsins:

Sävehof 35-33 Amo

Helsingborg 35-36 Karlskrona

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top