Þór áfram í deild þeirra bestu eftir sigur í Mosfellsbæ
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Afturelding tók á móti Þór í 21.umferð Olís deildar karla í kvöld í Mosfellsbænum.

Liðin höfðu ekki átt of góðu gengi að fanga eftir áramót og þurftu bæði að vinna, þá sérstaklega Þór sem var að berjast fyrir sæti sínu í deildinni.

Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en voru Mosfellingar alltaf skrefi á undan en lítið var skorað í upphafi leiks og var Einar Baldvin að finna sig vel í marki Aftureldingar sem náðu þó ekki að byggja upp gott forskot með hann í þessu ham. Staðan þegar flautað var til hálfleiks var, 15-13, heimamönnum í vil.

Afturelding hóf síðari hálfleikinn af miklum krafti og voru komnir með fjögurra marka forskot eftir um fimm mínútna leik. Þórsarar neituðu þó að gefast upp og náðu að vinna sig aftur inn í leikinn eins og við höfum séð oft frá þeim í vetur.

Þegar um fimmtán mínútur voru eftir af leiknum var staðan orðin jöfn, 21-21. Það fór hins vegar allt í lás hjá heimamönnum í Aftureldingu sem náðu einungis að skora þrjú mörk á síðustu 15 mínútum leiksins meðan Þór skoraði fimm og hafði að lokum tveggja marka sigur, 24-26.

Með sigrinum tryggðu Þórsarar áframhaldandi veru sína í Olís deildinni og eiga þeir ennþá mögulega á sæti í úrslitakeppninni en þeir mæta nágrönnum sínum í KA í sannkölluðum stórleik á heimavelli á fimmtudaginn.

Afturelding heldur áfram brösóttu gengi eftir áramót og sitja í 6.sæti deildinnar.

Ihor Kopyshynskyi var markahæstur hjá heimamönnum með 7 mörk en hjá Þórsurum var Brynjar Hólm Grétarsson markahæstur með 8 mörk.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top