Fram og ÍBV mættust í 21. Umferð Olís deild karla í Lambhagahöllinni í kvöld. Bæði lið voru örugg í úrslitakeppni fyrir leik og hvorugt lið átti möguleika á deildarmeistaratitlinum, því var aðallega verið að spila uppá endanlega stöðu í deildinni hvað varðar mótherja og heimaleikjarrétt. Mjög jafnt var á liðunum í leiknum, það var ekki fyrr en á 50. mínútu þar sem annað liðið gerði sig líklegan í að stinga af þegar ÍBV voru komnir með fjögurra marka forskot. Fram náðu þó að vinna sig til baka og voru búnir að jafna sex mínútum síðar þegar fjórar mínutur voru til leiksloka. Markmennirnir tóku þá yfir leikinn og var ekki skorað mark fyrr en Kristófer Ísak Bárðarson skoraði sigurmark ÍBV þegar tuttugu sekúndur voru til leiksloka, lokatölur 26-27. Ívar Logi Styrmisson og Rúnar Kárason hjá Fram voru markahæstir í leiknum, hvor með 8 mörk. Næstur á eftir var Andri Erlingsson hjá ÍBV með 5 mörk. Breki Hrafn Árnason var með 13 varða bolta eða 38,2% markvarsla, þar af var hann með 4 vörslur á lokakafla leiksins. Eftir úrslit kvöldsins situr ÍBV í fjórða sæti deildarinnar með 27 stig á meðan Fram situr í því sjöunda með 24 stig. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.