Haukar og Selfoss mættust í næstsíðustu umferð Olísdeildarinnar í kvöld. Mikið var undir fyrir bæði en Selfyssingar eru einungis einu stigi frá umspilssæti og Haukarnir voru fyrir leikinn í harðri baráttu um að tryggja sér heimavallarrétt í úrslitakeppninni. Það voru Selfyssingar sem byrjuðu leikinn af miklum krafti og voru komnir 4-1 yfir eftir einungis 3 mínútur. Það tók Haukana nokkra stund að vinna sig inn í leikinn en allt var jafnt 6-6 eftir 9 mínútna leik. Við tók gríðarlega jafn kafla þar sem hvorugt liðið náði að slíta sig frá og var staðan 17-16 í hálfleik Haukunum í vil. Haukarnir fóru greinilega vel yfir byrjun leiksins því þeir mættu töluvert betur inn í síðari hálfleikinn og náðu fljótt að slíta sig frá Selfossi. Eftir 10 mínútur í seinni hálfleik var staðan orðin 24-18. Eftir það litu Haukar aldrei um öxl og unnu 35-28 sigur. Með sigrinum og í ljósi þess að KA tapaði fyrir FH er ljóst að Haukar geta ekki endað neðar en í þriðja sætinu og eru því búnir að tryggja sér heimavallarrétt í úrslitakeppninni. Freyr Aronsson átti stórleik í liði Hauka og skoraði 13 mörk. Hannes Höskuldsson var markahæstur í liði Selfoss með 8 mörk. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.