ÍR heldur í vonina eftir sigur á Stjörnunni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

ÍR tók á móti Stjörnunni í sannkölluðum botnslag í 21.umferð Olís deildar karla í kvöld.

Ef ÍR myndi tapa stigi í leiknum myndi það þýða að liðið myndi leika í Grill 66 deildinni á næsta ári en með sigri myndu þeir halda í veika von að halda sér í deildinni.

Stjarnan byrjaði leikinn betur og komust í þriggja marka forskot snemma leiksins en ÍR voru snöggir að vinna það til baka og skiptust liðin á að hafa forskotið í fyrri hálfleik. Staðan var jöfn þegar liðin gengu til búningsherbergja, 13-13 og spennustigið í húsinu hátt enda mikið undir fyrir bæði lið.

Það dró til tíðinda á 36.mínútu þegar Tandri Már Konráðsson leikmaður Stjörnunnar fékk að líta beint rautt spjald fyrir brot sem Tandri mótmælti lítið. ÍR-ingar voru skrefinu á undan í síðari hálfleik og voru með undirtökin.

Á 50.mínútu leiksins fékk Jökull Blöndal Björnsson að líta beint rautt spjald fyrir litlar sakir og voru ÍR-ingar ekki ánægðir með þann dóm. ÍR hélt þó forystunni út leikinn og unnu frábæran fjögurra marka sigur, 30-26. ÍR mun því leika fyrir lífi sínu í deildinni á fimmtudaginn gegn FH í lokaumferðinni.

Stjarnan er ennþá í hættu á að falla beint en eru sem standur í 11.sæti deildarinnar og eiga leik gegn Fram í lokaumferðinni.

Bernard Kristján Owusu Darkoh var markahæstur ÍR-inga í kvöld með 10 mörk en hjá Stjörnunni var Starri Friðriksson markahæstur með 8 mörk.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top