KA og FH mættust í næstsíðustu umferð Olísdeildarinnar fyrir norðan í kvöld. FH-ingar unnu 25-30 sigur og halda þannig í vonina um deildarmeistaratitilinn. Það voru hinsvegar heimamenn sem byrjuðu leikinn betur og voru með yfirhöndina fyrstu mínúturnar. Var það ekki síst fyrir frábæran leik hjá Ágústi Elí sem var á þessum fyrstu mínutum leiksins með yfir 40% markvörslu. FH-ingar svöruðu hinsvegar fyrir sig og unnu sig inn í leikinn. Tókst FH að komast yfir 10-12 þegar um 3 mínútur voru eftir af fyrri hálfleiknum. KA menn létu ekki alveg segjast og voru þeir einu marki undir 12-13 þegar 9 sekúndur voru eftir og tóku þá leikhlé. Eftir leikhléið mættu KA menn með 7 sóknarmönnum gegn 6 varnarmönnum FH en það fór ekki betur en svo að Bjarni Ófeigur nánast rétti Ingvari Degi boltann sem skoraði í tómt markið og staðan 12-14 FH í vil í hálfleik. FH tók svo öll völd í síðari hálfleik og voru fljótt komnir 14-20 yfir. KA mönnum tókst þó að vinna sig aðeins inn í leikinn eftir því sem leið á en bilið reyndist of stórt og FH vann að lokum fimm marka sigur. Dagur Gautason var markahæstur í liði KA með 6 mörk og Ómar Darri SIgurgeirsson og Símon Michael Guðjónsson skoruðu 7 mörk fyrir FH. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.