Valur einum sigri frá deildarmeistaratitlinum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Valur er einum sigri frá deildarmeistaratitlinum í Olís-deild karla eftir sigur á HK í næst síðustu umferð deildarinnar á heimavelli í kvöld.

Eftir jafnan og spennandi fyrri hálfleik sigldu heimamenn í Val framúr gestunum úr Kópavogi í seinni hálfleik og unnu sjö marka sigur 33-26 eftir að hafa verið einu marki yfir í hálfleik 15-14.

Valur komst mest í tveggja marka foyrstu í fyrri hálfleik annars var jafnt með á liðunum nánast allan fyrri hálfleikinn. Í stöðunni 22-19 kom góður kafli hjá Val sem skoruðu fjögur mörk í röð og breyttu stöðunni í 26-19. Eftir það var aldrei spurning hvert stigin færu og Valsmenn gátu fagnað stigunum tveimur.

Björgvin Páll Gústavsson var með 17 varin skot í marki Vals, 40% markvörslu og Gunnar Róbertsson skoraði átta mörk fyrir Val. Bjarni í Selvindi skoraði sex mörk en báðir skoruðu þeir úr öllum sínum skotum í leiknum.

Markvarslan var ekki upp á marga fiska hjá HK-ingum í kvöld og Haukur Ingi Hauksson var markahæstur með sjö mörk. Sigurður Jefferson kom næstur með sex mörk.

Valur fer til Vestmannaeyja á fimmtudaginn og með sigri þar tryggja þeir sér deildarmeistaratitilinn en liðið er með einu stigi meira en FH. Geri Valur jafntefli og FH vinnur sinn leik í lokaumferðinni gegn ÍR þá enda liðin jafn að stigum og þá mun markatalan skera úr um hvort liðið verður deildarmeistari.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top