Miðjumaðurinn ungi og efnilegi, Andri Erlingsson leikmaður ÍBV haltraði af velli í seinni hálfleik í leik Fram og ÍBV í 21.umferð Olís-deildar karla í gærkvöldi. Andri hafði farið mikinn í leiknum áður en hann meiddist um miðbik seinni hálfleiks en hann hafði skorað fimm mörk fyrir ÍBV og gefið tvær stoðsendingar. ÍBV vann leikinn með einu marki 27-26 og er í 4.sæti deildarinnar fyrir lokaumferðina. Atvikið átti sér þannig stað að Andri Erlingsson var að bíða eftir frákasti eftir eiginskot þegar Dagur Fannar Möller féll ofan á Andra með þeim afleiðingum að Andri sneri sig á ökkla. Í samtali við Handkastið segist Andri ekki gera ráð fyrir því að geta spilað gegn toppliði Vals í lokaumferðinni sem fer fram á fimmtudagskvöld en leikur ÍBV og Vals fer fram í Vestmannaeyjum. Andri var nýkominn úr myndatöku þar sem hann fékk þær fréttir að hann væri óbrotinn sem er þó jákvæðar fréttir fyrir hann og Eyjamenn en Andri gengur í raðir Kristianstad eftir tímabilið. ,,Það er ólíklegt að ég spili gegn Val á fimmtudaginn nema ég vakni allt í einu eldhress. Ég er ennþá mjög verkjaður þannig mér finnst alveg virkilega ólíklegt að ég verði orðinn leikfær á fimmtudaginn," sagði Andri í samtali við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.