Landsliðsmaðurinn, Viggó Kristjánsson er orðaður við Flensburg en það er Hen Livgot sem segir frá á samfélagsmiðlinum X. Handkastið hefur undir höndum mynd af Viggó þar sem hann var staddur í Flensburg en ekki er vitað hvort myndin hafi verið tekin af honum í dag. Viggó er á sínu öðru ári hjá þýska úrvalsdeildarfélaginu Erlangen en hann var keyptur þangað seint í desember árið 2024 frá Leipzig. Flensburg er í 2.sæti þýsku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir með 39 stig, fimm stigum á eftir toppliði Magdeburg sem er með 44 stig. Um væri að ræða risa stórt skref fyrir Viggó sem væri á leið til toppliðs í bestu deild í heimi en Flensburg eru í harðri baráttu um þátttöku í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Viggó gekk til liðs við SC DHfK Leipzig sumarið 2022 eftir tveggja ára veru hjá Stuttgart. Þar áður hafi hann verið hjá Wetzlar og einnig hjá SC DHfK Leipzig en þaðan kom hann eftir veru hjá West Wien í Austurríki. Viggó fór á kostum með Erlangen í þýsku úrvalsdeildinni um helgina og skoraði 16 mörk í fimm marka sigri liðsins á Minden. Viggó er lang markahæsti leikmaður Erlangen með 131 mark á tímabilinu en Andri Már Rúnarsson er þriðji markahæsti leikmaður liðsins með 78 mörk. Erlangen er í 13. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með 17 stig eftir 24 umferðir, níu stigum frá fallsæti. 🚨🇮🇸 EXCLUSIVE: Viggo Kristjansson to SG Flensburg-Handewitt?
Advanced talks underway for a deal starting summer 2027. According to sources, negotiations progressing and agreement close between parties.
© @rygtebors
© @HBMRKT - Handball Transfermarkt
© @livgot - Hen Livgot pic.twitter.com/lnXV3Mcmlt

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.