Alpla Hard sem situr á toppi austurrísku úrvalsdeildarinnar hefur fundið eftirmann Hannesar Jóns Jónssonar sem lætur af störfum hjá félaginu eftir tímabilið. Nýr þjálfari Alpla Hard verður Grikkinn, Spyros Balomenos sem í dag þjálfar HSG Graz en HSG Graz er í næst neðsta sæti austurrísku deildarinnar með 14 stig eftir 17 umferðir. Áður þjálfaði Balomenos lið JSG Vöslau í Austurríki frá árunum 2022-2024 en hann er á sínu öðru tímabili með HSG Graz. Hannes Jón tók við Alpla Hard sumarið 2021 eftir að hafa verið þjálfari í nærri tvö ár hjá Bietigheim í Þýskalandi. Þjálfaraferillinn hófst hjá West Wien árið 2015 þar sem hann var þjálfari í fjögur ár en fyrsta árið var hann spilandi þjálfari West Wien í Austurríki. Hjá Alpla Hard leika tveir Íslendingar, þeir Tumi Steinn Rúnarsson og Tryggvi Garðar Jónsson sem gekk í raðir félagsins frá Fram síðasta sumar. Fjórar umferðir eru eftir af austurrísku deildinni en Alpla Hard er með eins stigs forskot á Linz sem er í 2.sæti deildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.