Danijela Sara lokar markinu hjá HK næstu tvö árin
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Danijela Sara Bokan Björnsdóttir hefur framlengt samningi sínum við HK til næstu tveggja ára. Þetta tilkynnir félagið á samfélagsmiðlum sínum nú rétt í þessu.

Danijela hefur varið mark HK síðustu tvö tímabil í Grill66-deildinni en liðið er í 2.sæti deildarinnar með jafnmörg stig og Grótta þegar þrjár umferðir eru eftir.

,,Danijela Sara er afar metnaðargjarn markvörður sem hefur þrátt fyrir ungan aldur staðið á milli stanganna í marki hjá meistaraflokki síðastliðin tvo tímabil. Hún vakti strax mikla athygli fyrir frammistöðu sína með yngri flokkum hjá HK og hefur einnig spilað með yngri landsliðum Íslands. Danijela Sara hefur tekið markverðum framförum að undanförnu og stefnir að því að komast í fremstu röð," segir í tilkynningunni frá HK.

Samkvæmt heimildum Handkastsins hafði Valur mikinn áhuga að fá Danijelu til sín í sumar en hún hefur ákveðið að halda tryggð við sitt uppeldisfélag og framlengt samningi sínum við HK.

,,Danijela Sara leggur hart að sér og kemur til með að ná langt. Það er því okkur mikil ánægja að hún skuli ákveða að framlengja samning sinn við HK. Danijela Sara mun halda áfram að efla þann öfluga hóp sem leikur með meistaraflokki kvenna hjá HK."

Dagur Snær Steingrímsson tekur við kvennaliði HK í sumar en enn er óvíst hvort HK leiki í Olís eða Grill66-deildinni á næstu leiktíð.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top