Átta leikir fóru fram í Evrópudeildinni í gærkvöldi og áttum við Íslendingar 9 fulltrúa í eldlínunni. Þorsteinn Leó Gunnarsson og liðsfélagar hans í Porto unnu Kristján Örn Kristjánsson (Donna) og félaga í Skanderborg Aarhus 29-30. Donni er mættur aftur á parketið eftir meiðsli og skoraði þrisvar sinnum en Þorsteinn Leó komst ekki á blað. Tryggvi Þórisson og Elverum unnu BM Granollers á Spáni 27-29. Tryggvi skoraði eitt mark í leiknum. Lærisveinar Heiðmars Felixsonar í Hannover máttu þola 26-23 tap fyrir RK Nexe eftir að hafa verið 14-9 undir í hálfleik. Ivan Barbic var atkvæðamestur fyrir RK Nexe með 9 mörk og Vilhelm Poulsen sem lék með Fram fyrir nokkru síðan var markahæstur fyrir Hannover með 5 mörk. Óðinn Þór Ríkharðsson og félagar í Kadetten Schaffhausen töpuðu með einu marki 29-30 fyrir Fredericia. Óðinn var samt sem áður markahæstur í liði Schaffhausen með 8 mörk. Reynir Þór Stefánsson skoraði 4 mörk og Arnar Freyr Arnarsson 2 í 25-34 tapi Melsungen gegn HC Vardar. Einar Bragi Aðalsteinsson hafði betur með liði sínu Kristianstad gegn Stiven Tobar Valencia í Benfica 22-30. Einar Bragi skoraði 4 mörk og Stiven skoraði tvisvar. Þá unnu THW Kiel 36-29 sigur á Flensburg þar sem Bence Imre var markahæstur fyrir Kiel með 8 mörk og Marki Grgic og Emil Jakobsen skoruðu 5 mörk hvor fyrir Flensburg. Montpellier unnu 34-36 sigur á Bidasoa Irun. Diego Simonet var markahæstur með 6 mörk fyrir Montpellier og Inaki Cavero Echepare var markahæstur fyrir Bidasoa Irun með 8 mörk. Leiðin í undanúrslitin er aðeins farin að skýrast og lítur svona út:
- Kiel mætir sigurvegaranum í leik RK Nexe og Kristianstad.
- Vardar mætir sigurvegaranum í leik Monpellier og Elverum.
- Porto mætir sigurvegaranum í leik Fredericia og Melsungen.
- Hannover mætir sigurvegaranum í leik Skanderborg - Flensburg.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.