Tinna Ósk Gunnarsdóttir og Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir voru markahæstar í liði HK í sjö marka sigri liðsins gegn Val 2 í Grill66-deild kvenna í kvöld í þriðju síðustu umferð deildarinnar. Laufey Helga Óskarsdóttir var markahæst í liði Vals 2 með tíu mörk og Guðrún Hekla Traustadóttir kom næst með fjögur mörk. HK 2 leiddi í hálfleik með tveimur mörkum 15-12 en Valsstelpur reyndust HK-stelpum erfiðar í seinni hálfleik og var staðan jöfn í stöðunni 21-21 þegar rúmlega tíu mínútur voru eftir af leiknum. HK reyndist hinsvegar sterkari aðilinn síðustu tíu mínútur leiksins og unnu að lokum sjö marka sigur 31-24 og unnu því síðustu tíu mínútur leiksins 10-3. Umferðin klárast á föstudagskvöld með þremur leikjum en HK fer á toppinn með sigrinum en Grótta mætir FH á föstudagskvöldið. Með sigri þar fer Grótta aftur á topp deildarinnar en þessi tvö lið eru að berjast um efsta sætið í deildinni sem veitir þátttöku í Olís-deild kvenna á næstu leiktíð. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.