Hörður með mikilvægan sigur á Fjölni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Hörður tók á móti Fjölni í 21.umferð Grill 66 deildar karla á Ísafirði í kvöld.

Fjölnir voru stigi á undan Herði fyrir leikinn og því um gífurlegar mikilvægan leik fyrir bæði lið í baráttunni um mótherja í undanúrslitum fyrir umspilið um sæti í Olís deildinni árið 2026/27.

Gestirnir úr Grafarvogi byrjuðu leikinn betur og voru komnir þrem mörkum yfir eftir um 15 mínútna leik í fyrri hálfleik. Leikmenn Harðar bitu þá í skjaldarrendur og náðu að snúa leiknum sér í vil með góðum kafla. Fjölnismenn voru þó ekki af baki dottnir í leiddu með tveim mörkum í hálfleik, 15-17.

Í síðari hálfleik var nánast jafnt á öllum tölum en Fjölnir var þó alltaf skrefinu á undan í markaskorun. Lokamínúturnar í leiknum voru æsispennandi og áttu leikmenn beggja liða erfitt með að finna netið því einungis tvö mörk voru skoruðu á síðustu tíu mínútum leiksins.

Jose Esteves Lopes Neto tryggði Harðverjum sigur þegar um fjórar mínútur voru eftir þegar hann kom Herði í, 29-28 og þar við sat.

Með sigrinum komst Hörður upp fyrir Fjölnismenn í deildinni með 22 stig meðan Fjölnir eru sæti neðar með 21 stig.

Shuto Takenaka var markahæstur í liði Harðar með 8 mörk en hjá Fjölni voru Brynjar Óli Kristjánsson, Óli Fannar Pedersen og Þorleifur Rafn Aðalsteinsson markahæstir allir með 6 mörk.

Sjáðu stöðuna í deildinni

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top