Kemur mest á óvart hvað er stutt á milli í þessu
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Snorri Steinn Guðjónsson valdi fyrr í vikunni landsliðshóp sinn fyrir komandi æfingaleiki gegn Svíþjóð sem fara fram í næstu viku hér á Íslandi. Fyrri leikurinn fer fram á fimmtudaginn í næstu viku og sá síðari á laugardagskvöldið 21.mars.

Í nýjasta þætti Handkastsins var farið yfir landsliðshópinn sem Snorri Steinn valdi og var Stymmi klippari spurður að því hvort eitthvað hafi komið honum á óvart í vali Snorra Steins.

,,Það sem kemur mér kannski mest á óvart er hvað er stutt á milli í þessu. Einar Baldvin er þriðji markmaður í janúar og er að æfa með liðinu þá en hann hefur ekki verið að finna sig nægilega vel með Aftureldingu eftir það en hann er ekki í myndinni núna," sagði Stymmi klippari áður en Sérfræðingurinn greip inní:

,,Það er nú kannski ekki alveg rétt að segja að hann sé ekki í myndinni þó hann sé ekki valinn.”

,,Nei allt í lagi, hann er allavegana ekki einn af þremur núna. Snorri talar um að hann vilji verðlauna strákana og leyfa þeim að spila fyrir land og þjóð og með þeim rökum skilur maður að Björgvin Páll Gústavsson sé þarna en á sama tíma er spurning hvort það hafi verið tímabært að prófa eitthvað annað núna.”

,,Það kemur annar landsliðsgluggi í maí, þegar Ísland mætir Egyptalandi og þar mun Snorri breyta hópnum," benti Sérfræðingurinn á en tilkynnt var á mánudaginn að íslenska landsliðið ferðist til Egyptalands í maí og leiki þar tvívegis gegn heimamenn í Kaíró.

Ísak Steinsson markvörður Drammen kemur inn sem einn af þremur markvörðum í landsliðshópnum ásamt Viktori Gísla Hallgrímssyni og Björgvini Páli Gústavssyni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top