Nú er tími til að dæla í sig peptíð
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Nýliðar Þórs tryggðu veru sína í Olís-deild karla með sigri á Aftureldingu í Mosfellsbænum í síðustu umferð en liðið er í 9.sæti Olís-deildarinnar með 13 stig, stigi á eftir HK sem er í 8.sætinu og eiga Þórsarar því enn möguleika á sæti í úrslitakeppninni.

Þór fær nágranna sína í KA í heimsókn annað kvöld þegar lokaumferðin fer fram í Olís-deild karla. Rætt var um gengi Þórs í Olís-deildinni í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins.

,,Þór spilar þennan iðnaðarbolta og eru ótrúlega lunknir. Þórsarar hafa gert ótrúlega vel í vetur og mér finnst það ótrúlegur árangur hjá Þór að vera í þessu sæti fyrir lokaumferðina, miðað við mannskapinn og breiddina sem þeir eru með í dag. Tímabilið hjá Þór hefur verið að spilast ótrúlega vel," sagði Kristinn Björgúlfsson gestur Handkastsins.

Stymmi klippari var næst spurður að því hvort það komi honum á óvart að Þór sé búið að tryggja sér sæti í deildinni fyrir næstu leiktíð, fyrir síðustu umferðina?

,,Já þetta kemur mér á óvart. Ég held reyndar að ég hafi spáð því fyrir tímabilið að þeir myndu halda sér uppi, það var einhver barnsleg einlægni. Ég vonaðist eftir því að þeim myndi ganga vel. Ég var að vonast eftir því að Þór færi í úrslitakeppni en á tímabili í vetur vorum við nánast búnir að fella þá."

Arnar Daði tók undir orð Klipparans og hrósaði Þórsurum fyrir stigasöfnunina.

,,Þeir ná samt í sín stig í byrjun tímabils og á einhverju tímapunkti í vetur vorum við að svekkja okkur á þeim að þeir væru ekki að sækja fleiri stig því þeir væru í dauðafæri til að fara í úrslitakeppnina. Það hefur ekkert lið verið í fallbaráttu á tímabilinu fyrir utan ÍR fyrir utan Stjörnuna núna. Stjarnan hefur sogist í fallbaráttuna en annars hefur ekkert lið verið í fallbaráttunni með ÍR. En þetta er fáránlega vel gert hjá Þór og það verður gaman að sjá hvað gerist núna. Þórsarnir eru með þannig leikmannahóp með leikmönnum sem eldast. Það eru margir leikmenn þarna sem eldast um eitt ár þegar tíminn líður."

,,Nú er bara að dæla í sig peptíð og sprauta sig með peptíð til að yngja sig," sagði Stymmi klippari.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top