Ómar Ingi ekki með Magdeburg í kvöld
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Lokaumferðin í Meistaradeild Evrópu hefst í dag með fjórum leikjum. Tveir leikir hefjast klukkan 17:45 og seinni tveir klukkan 19:45. Fjórir leikir fara síðan fram á morgun en þá lýkur riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Barcelona, Magdeburg, Álaborg og Füchse Berlin hafa öll tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum keppninnar og Kielce, Nantes, Veszprém, Sporting, Wisla Plock, GOG, PSG og Pick Szeged hafa öll tryggt sér sæti í 12-liða úrslitum keppninnar. Það skýrist hinsvegar á morgun hverjir mæta hverjum í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar.

Ljóst er að Ómar Ingi Magnússon verður ekki með liði Magdeburg gegn PSG í lokaumferðinni í kvöld en hvorki Ómar Ingi né Felix Claar verða með Magdeburg í leiknum í kvöld. Ómar Ingi á von á sínu þriðja barni og ferðaðist því ekki með liðinu til Frakklands fyrir leikinn sem hefst klukkan 19:45 í kvöld.

PSG er í 4.sæti B-riðils með 11 stig en GOG er einnig með 11 stig og Pick Szeged er með 10 stig. PSG þarf því á sigri að halda til að halda 4.sætinu í riðlinum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top