Markvörður ÍBV, Petar Jokanovic var ekki í leikmannahópi ÍBV í fyrradag þegar liðið vann eins marks sigur gegn Íslandsmeisturum Fram í 21.umferð Olís-deildarinnar, 26-27. Tveir af efnilegri markvörðum landsins þeir Morgan Goði Garner og Sigurmundur Gísli Unnarsson stóðu í marki ÍBV í leiknum og vörðu samtals tíu skot. ÍBV fær efsta lið deildarinnar Val í heimsókn á fimmtudagskvöldið í lokaumferðinni og sagði Petar í samtali við Handkastið að það þyrfti að koma í ljós þegar nær dregur leiknum hvort hann yrði verði orðinn leikfær. Um er að ræða bakmeiðsli sem hann varð fyrir á æfingu daginn fyrir leikinn gegn Fram en Petar segist vera í meðhöndlun hjá sjúkraþjálfara liðsins. ,,Í sannleika sagt þá gat ég ekki stigið í fótinn í gær en er orðinn aðeins betri í dag. Við verðum bara að sjá til, ég get ekki sagt 100% til um það hvort ég verði með í leiknum á fimmtudaginn," sagði Petar í samtali við Handkastið. ÍBV er í 4.sæti deildarinnar með 27 stig en KA er stigi á eftir ÍBV með 26 stig og Afturelding er í 6.sætinu með 25 stig. Valur getur tryggt sér deildarmeistaratitilinn með sigri í Eyjum á fimmtudaginn. Í gær fjölluðum við um meiðsli Dags Arnarssonar og Andra Erlingssonar liðsfélaga Petars sem einnig eru að glíma við meiðsli. Dagur glímir við tognun og Andri er óbrotinn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.