Sigurður Jefferson Guarino línumaður HK í Olís-deild karla hefur verið valinn í 18 manna landsliðshóp Bandaríkjanna sem tekur þátt í Norlys Golden League æfingamótinu sem fram fer í Danmörku dagana 19.-22.mars næstkomandi. Þar munu fjögur lið taka þátt en auk Bandaríkjanna verða heimamenn í Danmörku, Noregi og Hollandi þátttakendur á mótinu. Fyrsti leikur Bandaríkjanna á mótinu verður gegn Hollandi 19.mars, næst leikur liðið gegn Evrópumeisturum Danmerkur 21.mars og að lokum leikur liðið gegn Noregi 22.mars. Sigurður lék sína fyrstu landsleiki fyrir Bandaríkin á þróunarmóti Alþjóða handknattleikssambandsins í Búlgaríu í mars á síðasta ári en hann var einnig með landsliðinu á æfingamóti sem fram fór í Danmörku fyrr á þessu ári. Nú er hinsvegar komið að nýju verkefni hjá línumanninum sterka hjá HK sem hefur verið orðaður við Hauka að undanförnu. Það gæti orðið klókt hjá Haukum að fá til sín Sigurð sem gæti farið með Bandaríkjunum á næsta stórmót en öll félagslið leikmanna fá greitt fyrir að eiga leikmenn á stórmóti. Gjaldkeri Hauka gæti haft gaman af þeirri millifærslu. Landsliðshópur Bandaríkjanna á mótinu: Abou Fofana Alex Blanco Ben Liberty Benjamin Edwards Benjamin Pedersen Daniel János Hunyadi Domagoj Srsen Drew Donlin Gary Philips Ian Huter Joey Stromberg Lukas Karskov Hansen Nikolas Zarikos Pal Merkovszki Samuel Hodersen Patrick Huter Sean Corning Sigurður Guarino

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.