Sænski landsliðsmaðurinn og leikmaður Evrópumeistara Magdeburg hefur framlengt samningi sínum við þýska félagið til ársins 2028. Línumaðurinn gekk í raðir Magdeburg sumarið 2023 og er því á sínu þriðja tímabili með félaginu en hann var eitt ár hjá Stuttgart áður en hann gekk í raðir Magdeburg. Hann hefur einu sinni unnið þýsku deildina með Magdeburg og tvívegis orðið Evrópumeistari með félaginu á þessum þremur árum. Það þyrfti síðan eitthvað stórslys að eiga sér stað ef Magdeburg endar ekki sem þýskur meistari á þessu tímabili en liðið er með fimm stiga forskot á Flensburg eftir 24 umferðir en átta umferðir eru eftir af deildinni. Atvinnumannaferill Bergendahl byrjaði hjá Alingsas í Svíþjóð áður en hann fór til GOG í Danmörku og lék þar í fjögur ár áður en hann gekk í raðir Stuttgart.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.