Virðist aldrei vera vesen að spila fyrir landsliðið
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari íslenska karla landsliðsins segir það vera forréttindi að þjálfa íslenska landsliðið. Hann segist aldrei hafa lent í því að leikmenn sem hann hefur viljað fá í verkefni til sín hafi ekki gefið kost á sér nema af persónulegum ástæðum sem eru góðar og gildar.

Ómar Ingi Magnússon leikmaður Magdeburg verður ekki með íslenska landsliðinu í æfingaleikjunum gegn Svíþjóð sem fara fram hér á landi í næstu viku en Ómar Ingi á von á barni með unnustu sinni.

Snorri Steinn var spurður að því í viðtali við Handkastið eftir að hópurinn var tilkynntur hvort hann hafi eitthvað spáð í því að gefa lykilmönnum landsliðsins frí í þessu verkefni vegna álags bæði á Evrópumótinu og í kjölfarið.

,,Þegar ég hef samband við leikmennina þá hefur aldrei einhver ýjað að því að þurfi á frí að halda. Það er frábær tilfinning sem þjálfari, það virðist aldrei vera vesen fyrir þá að koma og spila fyrir landsliðið. Ég var ekkert að pæla í því að gefa einhverjum leikmönnum frí. Ég horfi á þessa tvo glugga í svolitlu samhengi."

,,Það sem gerist núna er ekkert endilega eitthvað lykilatriði og segir okkur ekkert hvernig HM verður 2027. En þegar ég geri upp mótið núna þá horfi ég meira aftur í tímann en áður. Mér finnst mikilvægt að við séum alltaf á ákveðnu leveli og alltaf að reyna þróa okkur og bæta okkur. Það að komast í undanúrslit núna á EM er ekkert endilega bara eitthvað sem gerðist í janúar, heldur hefur þetta átt sér stað yfir lengri tíma. Við þurfum að halda áfram þeirri vinnu og vanda okkur við það svo við getum gert aftur atlögu að verðlaunasæti," sagði Snorri Steinn meðal annars í viðtali við Handkastið.

Hægt er að sjá landsliðshópinn hér.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top