Keppnin í Olís-deild karla tímabilið 2025/2026 lauk í kvöld, 12. mars með sex leikjum. Valur tryggði sér deildarmeistaratitilinn með sex marka sigri gegn löskuðu Eyjaliði í Vestmannaeyjum. ÍR féll eftir sex marka tap gegn FH í Kaplakrika en jafntefli hefði dugað ÍR til að fella Stjörnuna sem tapaði sínum ellefta leik í röð gegn Fram á heimavelli í kvöld, 24-26. HK vann góðan þriggja marka sigur á Haukum sem tryggði liðinu inn í úrslitakeppnina og þá gerðu Þór og KA jafntefli auk Selfoss og Aftureldingu. Nýliðarnir, Selfoss og Þór eru bæði komin í sumarfrí og ekki nema tæplega sex mánuðir í næsta leik hjá þeim á nýju tímabili. Úrslitakeppnin hefst 25. mars eftir landsleikjapásu sem framundan er. Svona verður 8-liða úrslitin: Valur (1.sæti) – HK (8.sæti) FH (2.sæti) – Fram (7.sæti) Haukar (3.sæti) – Afturelding (6.sæti) ÍBV (4.sæti) – KA (5.sæti)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.