KA varð fyrir mikilli blóðtöku í vikunni þegar Daði Jónsson sleit hásin á æfingu liðsins. Daði var því ekki með liðinu í lokaumferðinni gegn Þór í gærkvöldi og ljóst að hann verður ekki meira með liðinu á þessu tímabili. Daði sem er uppalinn hjá KA hafði leikið alla leiki KA á tímabilinu fyrir leikinn í gær en um er að ræða mikið högg fyrir KA-liðið sem ætlar sér stóra hluti í úrslitakeppninni. Daði lék ekkert með KA tímabilið 2022/2023 en hefur verið lykilmaður í varnarleik KA undanfarin tvö tímabil.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.