Er verið að sniðganga kvennalið Selfoss?
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Einn mikilvægasti leikur Olís-deildar kvenna á þessu tímabili fer fram á Selfossi á morgun þegar tvö neðstu lið deildarinnar, Selfoss og Stjarnan mætast í þriðju síðustu umferð deildarinnar.

Selfoss er á botni deildarinnar með fjögur stig á meðan Stjarnan er í sætinu fyrir ofan með fimm stig. Einungis einu stigi munar á liðunum fyrir leikinn á laugardaginn.

Það sem vekur hinsvegar mesta athygli varðandi þennan leik er að þessi ótrúlega mikilvægi leikur verður ekki sýndur í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans heldur leikur Hauka og ÍBV sem hefst klukkan 13:00 sama dag en heil umferð fer fram á morgun í deildinni.

Það er kannski ekki frásögu færandi nema fyrir þær sakir að leikir kvennaliða Selfoss og Stjörnunnar í Olís-deild kvenna hafa aldrei verið í beinni útsendingu í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans á þessu tímabili en umferðin sem framundan er, er sú 19. í vetur.

Einn leikur í Olís-deildum karla og kvenna er sýndur í hverri umferð í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans en HSÍ er með sjónvarpsréttinn á Olís-deildum karla og kvenna.

Handkastið hefur tekið saman leikina sem hafa verið sýndir í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans í Olís-deild kvenna í vetur og þar kemur það bersýnilega í ljós að HSÍ sem er með sjónvarpsréttinn ásamt Símanum hefur sniðgengið kvennalið Selfoss og Stjörnuna í vetur. Hvorugt liðanna hefur fengið sjónvarpsleik í vetur.

Leikir Hauka og Vals hafa sex sinnum verið í sýndir í Sjónvarpi Símans og fimm leikir Fram og ÍR. Fjórir leikir hafa verið sýndir hjá ÍBV og tveir hjá nýliðum KA/Þórs.

Það sem gerir þetta enn ótrúlegra er að á síðustu leiktíð var sýnt frá einum leik Selfoss í Olís-deild kvenna í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans.

20.umferðin í Olís-deild kvenna:
13:00 Haukar - ÍBV
14:00 Selfoss - Stjarnan
15:00 Valur - Fram
15:15 ÍR - KA/Þór

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top