Handkastið tók viðtal við Jón Halldórsson formann HSÍ á dögunum og spurði hann út í stöðuna á nýrri Þjóðarhöll og ákvörðun HSÍ að leika æfingaleikina sem framundan eru gegn Svíþjóð í N1-höllinni og í Kaplakrika. Jón sagði í viðtalinu að HSÍ geti tekið það að einhverju leyti á sig að hafa ekki verið búin að bóka Laugardalshöllina með nægilega miklum fyrirvara fyrir æfingaleikina gegn Svíþjóð. Hver er staðan á nýju Þjóðarhöllinni sem á að rísa á næstu árum? ,,Það er allt í ferli varðandi nýju Þjóðarhöllina og það liggja fyrir einhverjar teikningar og ég held að það sé bara dagaspursmál hvenær sá pakki verður opnaður. Þær teikningar hafa verið í dómnefnd og varðandi skipulag og síðan koma peningar inn í þetta og í kjölfarið kemur í ljós hvaða Þjóðarhöll verður valin. Mér er sagt að það sé allt í ferli og mjög spennandi og vonandi fáum við að sjá eitthvað á næstu vikum hvernig þetta mun líta út." Framundan eru tveir æfingaleikir hjá karla landsliðinu hér á Íslandi og langt síðan jafn sterk þjóð kom til Íslands og lék æfingaleiki gegn Íslandi. Hvorugur leikjanna fara hinsvegar fram í Laugardalshöllinni. ,,Laugardalshöllin var upptekin og við getum alveg tekið það á okkur, HSÍ var ekki búið að bóka Laugardalshöllina þessa daga og þessi staða kom því upp. Bæði N1-höllin og Kaplakriki eru síðan hús sem hafa haldið stóra Evrópuleiki og halda vel utan um svona leiki og þetta eru hús sem við treystum okkur til að halda viðburði í og gera vel og búa til mikla og góða stemningu fyrir áhorfendur." Hvað fór úrskeiðis hjá HSÍ þegar bóka átti Laugardalshöllina fyrir landsleikina gegn Svíum? ,,Þetta snerist um skipulagsdæmi hjá okkur. Það þarf að skoða hvenær höllin er bókuð og í hvaða viðburði. Höllin var ekki bókuð fyrir okkur á þeim tíma og við vonuðumst eftir að þetta myndi þó ganga upp en það gekk ekki upp og við getum velt okkur endalaust uppúr því en þetta er staðan núna." Ítarlega viðtal við Jón er hægt að sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.