Lokaumferðin í Meistaradeild Evrópu lauk í gær með fjórum leikjum. Kolstad stóðu vel í Industria Kielce í gær en mátu þola 26-27 tap engu að síður. Sigvaldi Guðjónsson skoraðu 4 mörk, Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði 2 mörk og Sigurjóni Guðmundssyni tókst ekki að verja eina skotið sem hann fékk á sig. Veszprém töpuðu 33-38 fyrir Álaborg þar sem Thomas Arnoldssen var markahæstur með 8 mörk fyrir Álaborg og Luka Cindric var markahæstur fyrir Veszprém með 7 mörk. Sporting unnu 30-29 sigur á Dinamo Bucuresti í æsispennandi leik. Costa bræðurnir fóru á kostum og voru báðir með 7 mörk fyrir Sporting. Orri Freyr Þorkelsson skoraði 3 mörk. Þá unnu HBC Nantes 37-34 sigur á Fuchse Berlin þar sem Thibaud Briet var markahæstur með 13 mörk fyrir franska liðið og Mathias Gidsel var atkvæðamestur fyrir Berlínarrefina með 11 mörk. Hér að neðan má sjá hápunkta úr leikjum gærkvöldsins: Kolstad - Kielce 27-26 Veszprém - Álaborg 33-38 Füchse Berlin - Nantes 34-37 Sporting - Dinamo București 30-29

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.